Næstkomandi þriðjudag, þann 4. desember, verður síðasti hádegisfyrirlestur vetrarins í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands undir yfirskriftinni Hvað er fátækt? Að þessu sinni mun Gísli Gunnarsson sagnfræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands flytja erindið „Fátækt á Íslandi í aldanna rás“. Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst stundvíslega klukkan 12:05 og lýkur klukkan 13:00. […]
Read more...