Skip to main content

Sagnfræðingafélag Íslands efnir til sumarferðar um Suðurland 15. ágúst. Við ætlum á slóðir Oddaverja. Helgi Þorláksson, prófessor emeritus, er allra manna fróðastur um sögu þeirra og hann verður leiðsögumaður okkar í ferðinni.Við treystum því að þetta verði stórskemmtileg og fróðleg ferð enda af nægu að taka. Ferðin er öllum opin, bæði félögum og öðru áhugafólki um íslenska sögu og umhverfi. Fyrri ferðir félagsins hafa heppnast afskaplega vel og verið vel af þeim látið.

Við höldum af stað frá Reykjavík klukkan 10 og liggur leið okkar fyrst í Odda þar sem við förum í kirkju, göngum á Gammabrekku (sem póstlisti Sagnfræðingafélagsins heitir eftir) og ökum að hellinum við Langekru sem er eitt hinna gömlu kota Odda. Við skoðum Breiðabólsstað, hið gamla höfuðból í Fljótshlíð, förum á Njáluslóðir á Vallarkróki, Stórólfshvol og endum ferðina í Keldum þar sem við skoðum skálann, kirkjuna og göng sem þarna liggja. Að því loknu verður haldið aftur til Reykjavíkur þangað sem við gerum ráð fyrir að koma um klukkan 17.

📸Jennifer Boyer. https://www.flickr.com/photos/jenniferboyer/18811525855

Meðan á ferðalögum okkar stendur förum við líka á Hvolsvöll þar sem við nærumst.

Sem fyrr segir er ferðin opin bæði félagsmönnum og öðrum áhugasömum. Félagsmenn greiða 13.900 krónur en almennt verð er 15.900 krónur. Innifalið er rúta, leiðsögn, matur (súpa, brauð og kaffi eða te) og aðgangur að Keldum.

Skráið ykkur í ferðina með því að senda póst á netfangið audurthb@gmail.com. Greiða þarf þátttökugjald í síðasta lagi 10. ágúst til að skráningin gildi.

Við vonumst til að sem flest ykkar komi með.