Um 30 manns tóku þátt í söguferð Sagnfræðingafélags Íslands um Suðurland laugardaginn 15. ágúst. Saga Oddaverja var í algleymingi en þar sem farið var um Njáluslóðir var vísað til Njálu eftir því sem við átti. Helgi Þorláksson, prófessor emeritus og heiðursfélagi í Sagnfræðingafélagi Íslands, var leiðsögumaður okkar.
Við fórum í Odda þar sem farið var í kirkjuna og gengið að Gammabrekku áður en farið var að Langekru með rútu. Þaðan var keyrt um sögulegar slóðir í átt að Hvolsvelli þar sem snæddur var hádegismatur. Að því loknu var ekið að Velli, Stórólfshvoli og Breiðabólsstað.
Seinna stóra stopp ferðarinnar var í Keldum þar sem kirkjan og nágrenni hennar voru skoðaðar áður en haldið var aftur til Reykjavíkur.












