Skip to main content

Einhverjir stærstu viðburðir ársins 1986 voru til umræðu á fundi Sagnfræðingafélags Íslands í Neskirkju 23. september. Það var árið þegar leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna mættust á Íslandi í miðju Kalda stríðinu og tveimur hvalbátum var sökkt í Reykjavíkurhöfn.

Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, sagði frá væntanlegri bók sinni sem ber nafnið Kaldastríðsborg. Í þeirri bók fjallar Rósa um Reykjavík sem vettvang kalda stríðsins. Útgangspunktur bókarinnar er leiðtogafundur þeirra Reagans og Gorbatsjovs árið 1986 og undirliggjandi er kjarnorkuógnin og óttinn sem fylgdi henni. Bókin er hluti af ritröð Sögufélags.

Jóhann Gísli Ólafsson ræddi um skemmdarverk sem tveir liðsmenn umhverfisverndarsamtakanna Sea Shepherd Conservation Society unnu á Íslandi í nóvember 1986. Tveimur hvalveiðiskipum var þá sökkt í Reykjavíkurhöfn og skemmdir unnar á hvalstöðinni í Hvalfirði í mótmælaskyni við vísindahvalveiðar Íslendinga. Þrátt fyrir yfirlýsingar íslenskra ráðamanna um að öllum ráðum yrði beitt til að koma lögum yfir skemmdarverkamennina var aldrei gefin út ákæra í málinu, né framsals hinna grunuðu krafist.

Meðal fundargesta í sal voru hjónin Björn Heimir Janusarson og Sólveig Ólafsdóttir sem sögðu stórskemmtilega frá því þegar þau flæktust í báða þessa viðburði og komust meðal annars í tæri við mennina sem sökktu hvalskipunum.