Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hafnarstræti 5 í Reykjavík, miðvikudaginn 18. mars og hefst klukkan 20.
Fundurinn hefst á hefðbundnum aðalfundarstörfum og lýkur að venju með fyrirlestri.
Dagskrá verður kynnt betur þegar nær dregur en við hvetjum fólk til að taka kvöldið frá.
Fyrirlesturinn er opinn öllum en aðeins félagar geta tekið þátt í aðalfundarstörfum.
Því er ekki úr vegi að þau sem hafa á því áhuga geta sótt um aðild að Sagnfræðingafélaginu með því að senda tölvupóst á félagið.
Um aðalfund segir í lögum félagsins:
6. grein
Aðalfundur
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Fundinn skal halda í mars ár hvert. Komi upp slíkar aðstæður í þjóðfélaginu að ekki reynist unnt að halda hann í mars skal aðalfundur haldinn svo fljótt sem auðið er. Til hans skal stjórn félagsins boða með opinberri auglýsingu (svo sem á samfélagsmiðlum, vef félagsins, gegnum póstlista félagsins eða í fjölmiðlum) með minnst 10 daga fyrirvara. Dagskrá aðalfundar skal vera svohljóðandi:
- Formaður lýsir eftir framboðum til fundarstjóra og fundarritara aðalfundar sem að loknu kjöri taka við fundarstjórn og ritun fundargerðar.
- Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til samþykktar.
- Endurskoðaðir ársreikningar félagsins kynntir og lagðir fram til samþykktar. Ákvörðun árgjalds fyrir næsta starfsár.
- Lagabreytingar (sbr. 9. grein).
- Kjör stjórnar (sbr. 8. gr.). Kjör tveggja endurskoðenda reikninga og tveggja fulltrúa í Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga til eins árs.
- Önnur mál.
Áður en fundur er settur skulu liggja frammi gögn þess efnis að til fundarins hafi verið löglega boðað. Ef áhöld eru um að rétt hafi verið staðið að fundarboði, skal kjörinn fundarstjóri skera úr um lögmæti fundarins. Fundarstjóri skal fylgja almennum venjum um fundarsköp. Einungis félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Á fundinum ræður einfaldur meirihluti í öllum málum nema þeim sem lúta að breytingum á lögum félagsins (sbr. 9. gr.). Ársskýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar skulu birtir í fréttabréfi og/eða á heimasíðu félagsins. Halda skal fundargerð um aðalfund og skal fundarstjóri staðfesta hana með undirskrift sinni.


