Skip to main content

Þriðjudaginn 16. september flytur Björn Bjarnason hádegisfyrirlesturinn Kalda stríðið – dómur sögunnar. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.