Skip to main content

Þriðjudaginn 14. nóvember flytur Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir erindið „Gullkistan Djúp. Þróun byggðar og mannlífs við Ísafjarðardjúp“. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 og fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Þetta er fimmti fyrirlestur þessa haustmisseris í röð fyrirlestra sem Sagnfræðingafélag Íslands skipuleggur í samvinnu við Þjóðminjasafnið.
Ísafjarðardjúp hefur stundum verið nefnt Gullkistan vegna þeirra miklu náttúrugæða sem þar er að hafa, ekki síst verðmæta fiskveiðiauðlind. Við Ísafjarðardjúp hafa búið höfðingjar og stjórbændur um aldur og þar reis eitt stærsta verslunarveldi á Íslandi um miðja 19du öld. Á síðustu áratugum hafa þó orðið mikil umskipti á aðstæðum og atvinnuskilyrðum við Ísafjarðardjúp þar sem sveitir hafa lagst í eyði og fólksfækkun verið viðvarandi bæði í sveitum og þétttbýli. Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er höfundur bókarinnar „Við Djúpið blátt“ sem er Árbók Ferðafélags Íslands 2017 og fjallar meðal annars um þróun byggðar og mannlífs á þessum slóðum. Í fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir efni bókarinnar og leitast við að varpa ljósi á orsakir þeirrar þróunar sem greina má á mannlífi og menningu við Djúp.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir lauk doktorsprófi í íslenskum bókmenntum árið 2000 með ritgerðinni Brennuöldin – galdur og galdratrú í málskjölum og munnmælum. Hún hefur haldið fyrirlestra, skrifað fræðigreinar og bækur mörg undanfarin ár. Nýjasta bók hennar Við Djúpið blátt fjallar um byggð, mannlíf og sögu við Ísafjarðardjúp sem er efni hádegisfyrirlestrar hennar að þessu sinni.