Skip to main content

Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og Heimir B. Janusarson garðyrkjustjóri munu leiða félagsmenn um Suðurgötukirkjugarðinn. Sagt verður frá fólkinu sem þar hvílir, flóru garðarins og öðru forvitnilegu sem snertir sögu garðsins.
Síðasta haustganga félagsins tókst vel og er stefnan að hefja haustið framvegis á slíkum göngum. Gerum okkur góðan dag í hópi skemmtilegra félaga og mætum í Hólavallagarð laugardaginn 5. september kl. 14:00 við Hringbrautarhliðið.