Þriðjudaginn 9. desember flytur Kristín Loftsdóttir hádegisfyrirlesturinn Framandi trú og kristnar rætur Íslands: Óttinn við að glata íslenskri menningu í fjölmenningarlegu samfélagi. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.