Skip to main content

Þriðjudaginn 25. nóvember flytur Óttar Guðmundsson hádegisfyrirlesturinn „Best værirðu geymdur á Kleppi!“ Fordómar gegn geðsjúkum á liðinni öld. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.