Skip to main content

Þriðjudaginn 11. nóvember flytur Hallfríður Þórarinsdóttir hádegisfyrirlesturinn Júðar, negrar og tataralýður – ótti, ógn og meintir útlenskir óvinir Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er að óttast?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.