Skip to main content

Þriðjudaginn 31. mars flytur Sigurður Líndal hádegisfyrirlesturinn Andófið gegn Atlantshafsbandalaginu 30. marz. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er andóf?
Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.