Skip to main content

Næstkomandi þriðjudag, 22. febrúar 2010, heldur rósa Magnúsdóttir fyrirlestur sinn „Þóra og Kristinn: ævisaga – hjónasaga – kynslóðasaga – kynjasaga?“ í hádegisfyrirlestraröðinni Hvað er kynjasaga?
Ævisaga Þóru og Kristins er ekki bara saga konu og karls heldur saga samheldra hjóna og sambands þeirra við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, kvennabaráttuna, kommúnismann, Sovétríkin og alþjóðahyggjuna. Hjónin Þóra og Kristinn deildu ekki bara borði og sæng, heldur líka skoðunum og vinahópi. Saga þeirra endurspeglar íslenska menningarsögu á tuttugustu öld og nú – þökk sé ötulum dagbókarskrifum Þóru – er mögulegt að skoða til jafns hlutverk kvenna og karla í þessari áhugaverðu sögu.  Í fyrirlestrinum verður ævi hjónanna rædd út frá mögulegum aðferðafræðilegum nálgunum á efnið.
Fyrirlesturinn fer fram í sal Þjóðminjasafns, hefst kl. 12.05 og er bæði opinn öllum og ókeypis.