Skip to main content

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands, þriðjudaginn 14. nóvember 2006 kl. 12:05-12:55.
Fyrirlesturinn mun fjalla um hvernig hin skráða íslenska saga hefur frá upphafi verið skrifuð út frá ákveðnum miðlægum hneigðum. Hinn kristni menningararfur var þar auðvitað allsráðandi, en sérstaklega voru elstu sagnaritarnir uppteknir af spurninginni um hvaða ættir og bændahöfðingjar hefðu numið hin mismunandi landsvæði og seinna hvernig eftirkomendurnir réttlættu völd sín og eignarrétt. Þessi áhugi endurspeglaðist bæði í sagnaritun, varðveislu fornbréfa og margskonar afritun sagna og miðaldaskjala. Önnur saga lifði þó líka með þjóðinni í formi margskonar kveðskaps og munnmælasagna. Fyrirlesturinn mun fjalla um þessar tvær hefðir og hvernig þær hafa mótað íslensku sagnfræðihefðina.
Agnes S. Arnórsdóttir er lektor í miðaldasögu við Aarhus Universitet. Hún er um þessar mundir að leggja lokahönd á viðamikla rannsókn um kanónískan rétt og áhrif hans á íslenska kaupmálagerð hjóna á miðöldum. Samhliða því stundar hún tvær aðrar rannsóknir. Önnur er um sálugjafir á síðmiðöldum, og hin um hvernig ímynd hins íslenska bónda þróaðist í miðaldasagnaritum og seinni tíma afritum.
Agnes hefur m.a. skrifað bókina Konur og vígamenn (Reykjavik 1995), og greinar sem eru að koma út eða eru nýútkomnar í 2006 eru:
„Erindring i afskrift“, i Høiris, O. (ritstj.) Renæssancens verden, Aarhus Universitetesforlag, Århus 2006.
„Magt og magtesløshed“, i Larsen, A.T., Bøge Pedersen, M. (ritstj.) Det bedste selskab., SFAH – Publikation nr. 45, s. 9-21.
„Sjælegaver i senmiddelalderen“, i Arnórsdóttir, A., Ingesman, P., Poulsen, B. (ritstj.) Konge og kirke som øvrighedsmagter i dansk senmiddelalder, Aarhus Universitetsforlag 2006 (væntanleg) „Icelandic Marriage Contracts“, i Reynolds, P. (ritstj.) Marrying in the Middle Ages, Cambridge University Press, Cambridge 2006 (væntanleg).