Skip to main content

Þriðjudaginn 11. mars flytur Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Handritadeildar Landsbókasafns Íslands, hádegisfyrirlesturinn Hver gætir hagsmuna minna? Um notkun og aðgengi að einkaskjölum í Landsbókasafni. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands Hvað er varðveisla?

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.