Skip to main content

Næstkomandi þriðjudag, þann 20. nóvember, verður sjötti hádegisfyrirlestur vetrarins í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands undir yfirskriftinni Hvað er fátækt? Að þessu sinni mun Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur flytja erindið „Íslenska neyslusamfélagið. Úr neysluæði í kreppu“.
Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst stundvíslega klukkan 12:05 og lýkur klukkan 13:00.