Skip to main content

Þriðjudaginn 11. nóvember flytur Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur hádegisfyrirlesturinn Júðar, negrar og tataralýður? Ótti, ógn og meintir útlenskir óvinir Íslands.

Hádegisfyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins fara fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og standa frá klukkan 12.05 til klukkan 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.