Skip to main content

Fimmtudagskvöldið 20. nóvember mun Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur halda erindi á sameiginlegum fundi Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags. Fjallað verður um baráttu Breta fyrir þröngri landhelgi 1948-64 og byggist á doktorsritgerð Guðna, Troubled Waters. Cod War, Fishing Disputes, and Britain’s Fight for the Freedom of the High Seas, 1948-64 en Guðni mun verja hana við University of London í desember.
Fundurinn verður í húsi Sögufélags í Fischersundi og hefst kl. 20:30.