Skip to main content

Aðalfundur Sagnfræðingafélags Íslands var haldinn 18. mars, nokkrar breytingar urðu á stjórn og miklar umræður urði í framhaldi af fyrirlestri sem Pontus Järvstad hélt að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum.

Ragnhildur Anna Kjartansdóttir formaður og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson meðstjórnandi létu bæði af störfum. Agnes Jónasdóttir var kosin formaður félagsins. Í stað þeirra sem hættu voru kosnir nýir í stjórn þeir Gunnar Þór Bjarnason og Markús Þórarinn Þórhallsson. Markús hefur áður setið í stjórn félagsins og Gunnar Þór verið í stjórn ýmissa félaga.

Pontus Järvstad hélt fyrirlestur um andfasisma; Grikklandshreyfingar á Norðurlöndum sem beittu sér gegn herforingjastjórninni á Grikklandi 1967 – 1974. Fyrirlesturinn vakti mikinn áhuga viðstaddra og voru líflegar umræður að honum loknum.

Pontus Järvstad hélt fyrirlestur kvöldsins.

Ragnhildur Anna lauk störfum sínum sem formaður með því að gera grein fyrir starfi félagsins á síðasta starfsári. Félagið hélt fundi og málþing, stóð fyrir vorferð og var í samstarfi við AkureyrarAkademíuna og Minjasafn Akureyrar um fyrirlestraröð á upphafsmánuðum ársins.

Agnes gjaldkeri fór yfir reikninga síðasta árs. 184.951 afgangur var af starfi félagsins á síðasta ári. Agnes tók þó fram að útgjaldamestu þættir starfsársins voru eftir áramót og færast því á næsta ársreikning.

Samþykkt var að halda félagsgjaldi óbreyttu. Það er 3.500 krónur.

Að neðan má nálgast ársskýrslu og ársreikning félagsins.