Skip to main content

Hinn árvissi Bókafundur Sagnfræðingafélagsins fer fram í húsi Sögufélags fimmtudaginn 17. janúar og hefst kl. 20:30. Í þetta sinn verða þrjár bækur teknar fyrir:
Erla Hulda Halldórsdóttir fjallar um bókina „Björg“ eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur,
Már Jónsson ræðir um bókina „Landsins forbetran“ eftir Hrefnu Róbertsdóttur, og Gunnar Karlsson tekur til umfjöllunar bókina „Uppgjör við umheiminn“ eftir Val Ingimundarson.
Höfundarnir verða viðstaddir þannig að þarna gefst gott tækifæri til þess að spyrja þá út í verkin.