Skip to main content

9. landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi verður haldin á hinu nýja Heklusetri á Leirubakka í Landsveit í samvinnu við heimamenn helgina 1.-3. júní 2007.
Nánari dagskrá og upplýsingar er að finna hér að neðan:

Ráðstefnugestir munu gista og funda á hinu fornfræga höfðingjasetri að Leirubakka sem var eitt sinn í eigu ekki ófrægari manna en rithöfundar Íslands Snorra Sturlusonar og síðar Björns Þorleifssonar hirðstjóra. Eftir stranga fræðimennsku er ekki verra að svamla í glæsilegri Snorralaug í kvöldsólinni með ægifögru útsýni á Heklu og ræða niðurstöður dagsins við aðra ráðstefnugesti. Þá verður boðið upp á fræðslu- og skemmtiferð um Hekluslóðir. Hér gefst því einstakt tækifæri til að fræðast og treysta vinabönd í góðra vina hópi í faðmi náttúrunnar.
Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Hálendi hugans“ og verður umfjöllunarefnið, eins og titillinn gefur til kynna, hálendi Íslands, sagan, þjóðsögur, nýting og samspil náttúruaflanna og mannsins á þessu svæði.
Ráðstefnugestum býðst gisting á Leirubakka, sem og að kaupa sér kvöldverð föstudaginn 1. júní og hátíðarkvöldverð laugardaginn 2. júní. Verð fyrir gistingu er eftirfarandi:
==Gisting með morgunverði í TVÆR nætur:==
* Verð á mann í tveggja manna herbergi með baði, samtals 12.600
* Verð á mann í eins manns herbergi með baði, samtals 19.800
* Verð á mann í 2ja-4ra manna herbergi án baðs, samtals 8.900
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir um að skrá sig við fyrsta tækifæri, ekki síst til að tryggja sér gistirými, sem er takmarkað. Valgerður Brynjólfsdóttir, staðarhaldari á Leirubakka, mun verða okkur innan handar með að útvega gistipláss í nágrenni Leirubakka ef gistiaðstöðu á ráðstefnustað þrýtur.
Ráðstefnuhaldarar munu greiða rútuferðir til og frá Leirubakka, hádegismat, kaffi og skoðunarferð. Athugið, að ráðstefnugjald er ekkert!
Valgerður á Leirubakka heldur utan um skráningu. Vinsamlegast látið hana vita sem fyrst um:
* fyrirkomulag gistingar
* hvort þið gerið ráð fyrir að vera í kvöldverð föstudaginn 1. júní og/eða hátíðarkvöldverð laugardaginn 2. júní
* hvort þið munið nýta ykkur rútuferð til og frá ráðstefnustað
* hvort þið gerið ráð fyrir að koma með í rútuferðina á laugardeginum
Tekið er við skráningum á netfangið vala@leirubakki.is eða í síma 487 8700 eða 893 5046 (ef netsamband er slæmt gæti reynst nauðsynlegt að senda bréfið aftur, þ.e. ef Valgerður svarar ekki). Vinsamlegast sendið fulltrúa annars félagsins afrit af bréfinu: adalh@hi.is (Félag þjóðfræðinga) eða gudnith@hi.is (Sagnfræðingafélagið).
===Dagskráin verður eftirfarandi:===
==Föstudagurinn 1. júní==
* 15:00 Brottför með rútu frá Nýja Garði
* 17:30-18:00 Skrásetning og fólk kemur sér fyrir
* 18:00-19.30 Léttur kvöldverður
* 20:00-20:30 Setningarfyrirlestur: Guðmundur Jónsson sagnfræðingur: Ástríður Guðna Jónssonar. “Hugleiðing um manninn og verk hans.“
* 20:30-23:00 Móttaka vegna afhjúpunar minnisvarða um Guðna Jónsson
==Laugardagurinn 2. júní==
* 08:00-09:00 Morgunverður
* 09:00-10:30 “’Handan hins þekkta“’:
** Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur: “Óttinn við hið óþekkta“.
** Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir íslenskufræðingur: “Landmannaafréttur – útmörk hins mannlega samfélags. Sagnir af Jóni Brandssyni, fjallkóngi og bónda í Næfurholti“.
** Margaret Cormack miðaldafræðingur: “Á sveimi yfir Heklu: hugmyndir miðaldamanna um fugla og sálir.“
* 10:30-11:00 Kaffi
* 11:00-12:30 “’Landamæri og landamörk“’:
** Helga Ögmundardóttir mannfræðingur: “Afrétturinn sem hluti af hinu sameiginlega sjálfi. Gnúpverjar og vinin sunnan Hofsjökuls.“
** Einar G. Pétursson handritafræðingur: “Eignir kirkna á fjalllendi og málskilningur og heimildanotkun í þjóðlendumálum.“
** Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræðingur: “Hverjir nýttu fyrrum byggðir og auðnir Íslands frá fjöru til fjalls – og hvernig?“
* 12:30-14:00 Hádegisverður og hlé
* 14:00-15:30 “’Í huga sérhvers manns“’:
** Marion Lerner menningarfræðingur: “Ferðasögur sem minnismerki handa þjóðinni“.
** Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur: “Hálendið í hugum útlendra ferðamanna“.
** Anna Dóra Sæþórsdóttir ferðamálafræðingur: “Nýting hálendisins til ferðamennsku“.
* 15:30-18:00 Fræðsluferð um Hekluslóðir (með kaffi). Leiðsögumaður: Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, með aðstoð Þórs Jakobssonar veðurfræðings.
* 20:00-22:00 “’Hátíðarkvöldverður“’
** Björk Þorleifsdóttir sagnfræðingur: “„Troddu þér nú inn í tjaldið hjá mér“. Skemmtanalíf á hálendinu.“
** Bjarni Harðarson blaðamaður: Hátíðarræða.
==Sunnudagur 3. júní==
* 10:00-11:30 “’Könnun hálendisins“’:
** Ingibjörg Jónsdóttir landfræðingur: “Óbyggðaleiðangrar Þorvalds Thoroddsen.“
** Ingólfur Á. Jóhannesson sagnfræðingur: “Ísland er ekki líkt tunglinu – hugleiðingar um þjálfun tunglfara á Íslandi.“
** Unnur Birna Karlsdóttir: “’Landnám iðnvæðingar – öræfi og virkjanir. Um viðhorf til hálendisins í umræðu um virkjanir á 20. öld.“’
* 11:30-13:30 Hádegisverður og hlé
* 13:30-17:00 “’Opin málstofa um hálendið:“’
** Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur: “Hálendi hugans“.
** Þorsteinn Hilmarsson heimspekingur: “Er firring í firnindum?“
* 15:00-15:30 Kaffi
* 13:30-17:00 “’Opin málstofa um hálendið:“’
** Þorvarður Árnason umhverfisfræðingur: “Fagurfræði hálendisins“.
** Júlíus Sólnes verkfræðingur: “Hálendið-sjálfstjórnarsvæði í eigu almennings“.
* 18:00-20:30 Rútuferð til Reykjavíkur
“Undirbúningsnefndina skipa: Björk Þorleifsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson og Íris Ellenberger fyrir hönd Sagnfræðingafélagsins, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir fyrir Félag þjóðfræðinga, auk ábúenda á Leirubakka.“
“Styrktaraðilar: Menntamálaráðuneyti, Umhverfisráðuneyti, Fjármálaráðuneyti, N1, Rangárþing ytra, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Bændasamtök Íslands og Heklusetrið, Leirubakka.“