Skip to main content

Magnús Þorkell Bernharðsson, lektor í miðausturlandafræðum og íslömskum fræðum við Hofstraháskólann í New York, verður frummælandi á hádegisrabbfundi Sagnfræðingafélags Íslands og ReykjavíkurAkademíunnar mánudaginn 14. október. Yfirskrift fundarins er Hnattvæðing eða „islamvæðing“? Ástand og horfur í Miðausturlöndum. Magnús er sérfræðingur í málefnum þessa heimshluta og er því mikill fengur af því að fá hann á fund. Þess má geta að hann verður einnig með fyrirlestur í Háskóla Íslands um Írak miðvikudaginn 9. október.
Magnús lauk BA-próf frá HÍ (1990) með stjórnmálafræði sem aðalgrein og guðfræði sem aukagrein. Hann lauk meistaragráðu í trúarbragðafræðum frá guðfræðideild Yale-háskóla (1992) og stundaði síðan nám í arabísku í Damaskus á Sýrlandi (1992-93). Hann lauk doktorsprófi frá sagnfræðideild Yale-háskóla (1999), en ritgerð hans, sem ber titilinn Reclaiming a Plundered Past: Archaeology and Nationalism in Modern Iraq, 1808-1941, kemur út hjá University of Texas Press á næsta ári. Eftir hann liggur fjöldi greina og einnig hefur hann ritstýrt bókum og greinaflokkum. Hann hefur kennt við Hofstraháskólann síðan haustið 1999.
Fundurinn fer fram í aðalfundarsal ReykjavíkurAkademíunnar á 4. hæð í JL-húsinu að Hringbraut 121 og hefst klukkan 12:05.