Skip to main content

Þriðjudaginn 24. september heldur Guðjón Friðriksson sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist „Guðmundur Hannesson og skipulag Reykjavíkur“. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur frá kl. 12:05 til 13:00.
Upp úr aldamótum 1900 voru skipulagsmál Reykjavíkur samtvinnuð baráttu um bætt heilsufar bæjarbúa. Það er því ekki tilviljun að læknar voru meðal helstu skipulagsfrömuða er byrjað var að huga að þeim málum. Fremstur þeirra var Guðmundur Hannesson, en rit hans Um skipulag bæja, sem út kom 1916, var brautryðjandaverk. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hugmyndir Guðmundar og áhrif hans á mótun og skipulag Reykjavíkurborgar á fyrri hluta 20. aldar.
Guðjón Friðriksson er sagnfræðingur í Reykjavíkurakademíunni. Eftir hann liggja tvö bindi af Sögu Reykjavíkur á árunum 1870-1940 auk fleiri verka um höfuðborgina. Á síðari árum hefur hann einkum fengist við ritun ævisagna.
Eftir hann liggja m.a. ævisögur Jónasar Jónssonar frá Hriflu og Einars Benediktssonar og nú í haust kemur út fyrra bindi af ævisögu Jóns Sigurðssonar forseta.