Skip to main content

Næstkomandi þriðjudag, 26. september, mun Anna Agnarsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands flytja fyrirlesturinn Hvað er satt í sagnfræði? í sal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fundurinn hefst klukkan 12:05 og lýkur 12:55.
Um fyrirlestur Önnu segir: Hlutverk sagnfræðingsins er að leita að sannleikanum um fortíðina. Hann má ekki skálda. Hann spyr: Hvað gerðist? Af hverju gerðist það? Engin leið er að upplifa fortíðina á ný. Er hægt að endurheimta fortíðina í ritum sagnfræðinga? Er eitthvað satt í sagnfræði?