Skip to main content

Rannsóknaræfing Félags íslenskra fræða – í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna, sagnfræðingafélag Íslands, Félag þjóðfræðinga á Íslandi og Íslenska málfræðifélagið – verður að þessu sinni haldin við lok Hugvísindaþings, í Tunglinu, Iðusölum við Lækjargötu, laugardagskvöldið 4. nóvember næstkomandi.
Húsið opnar klukkan 19.30 – borðhald hefst kl. 20.00
Veitingar
Eftir hin andlegu hlaðborð Hugvísindaþings er tilvalið að gæða sér á blönduðu smáréttahlaðborði! Meðal rétta má nefna kjúklinga- og lambakjötsspjót, snittur, tígrisrækjur og sæta eftirrétti. Drykkjarföng verða til sölu á staðnum.
Ræðumaður kvöldsins
Rithöfundurinn og útvarpsmaðurinn Ævar Örn Jósepsson.
Veislustjóri
Ármann Jakobsson.
Skemmtiatriði
Að borðhaldi loknu mun hljómsveitin Bræðrabandið leika fyrir dansi. Þá verða skemmtiatriði á vegum veislustjóra og stjórnar.
Aðgangseyrir er 2.900 krónur
Skráning
Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst til Katrínar Axelsdóttur: katax@hi.is, eða hringja í hana í síma: 553-1486. Nauðsynlegt er að gera það í síðasta lagi
mánudaginn 30. október.
Bestu kveðjur,
stjórnir félaganna