Skip to main content

Hinn árlegi bókafundur Sögufélags og Sagnfræðingafélags Íslands verður haldinn í húsakynnum Sögufélags í Fischersundi, þriðjudagskvöldið 30. janúar kl. 20:00.
Ritin sem fjallað verður um eru:
– Upp á sigurhæðir eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur. Umfjöllun: Sigríður Th. Erlendsdóttir.
– Erlendir straumar og íslensk viðhorf eftir Inga Sigurðsson. Umfjöllun: Páll Björnsson.
– Óvinir ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson. Umfjöllun: Rósa Magnúsdóttir.
– Skáldalíf eftir Halldór Guðmundsson. Umfjöllun: Gunnar Karlsson.
– Saga Íslands, 8. bindi eftir Lýð Björnsson, Guðbjörn Sigurmundsson og Þóru Kristjánsdóttur. Umfjöllun: Bragi Þorgrímur Ólafsson.
– Íslenskir sagnfræðingar I og II. Ritstjórar að fyrsta bindi eru Ívar Gissurarson, Páll Björnsson, Sigurður Gylfi Magnússon og Steingrímur Steinþórsson. Ritstjórar að seinna bindi eru Loftur
Guttormsson, Páll Björnsson, Sigrún Pálsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon. Umfjöllun: Anna Agnarsdóttir.
Fundarstjóri verður Ólafur Rastrick, sagnfræðingur og doktorsnemi.
Hver framsaga verður 10 mínútur, síðan taka við umræður. Kaffi verður á boðstólum og léttar veitingar á léttu verði.