Skip to main content

Vegna kórónufaraldurs og samkomutakmarkana verður Hugvísindaþing 2020 haldið á netinu. Hugvísindaþing er árviss ráðstefna Hugvísindastofnunar þar sem fram er borið það helsta í fræðunum í málstofum ætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Boðið verður upp á málstofur sem verða birtar á Facebook en vistaðar á YouTube-rás Hugvísindasviðs að þingi loknu. Gestir þingsins geta sent fyrirlesurum skriflegar spurningar og athugasemdir meðan á málstofu stendur og í nokkra stund að henni lokinni. Nánar um málstofurnar hér.